Ef þú ert að lesa þetta þýðir það að þú hafir ákveðið að staldra við eitt augnablik. Í heimi dagsins í dag er það eitt og sér ákveðin uppreisn. Heimurinn kann að þjóta áfram þarna úti með ólesin skilaboð og tilkynningar sem kalla á athygli þína. En einmitt núna ert þú hér. Dragðu því andann djúpt.
Hugmyndin að Balance Phone spratt úr þeirri tilfinningu að tæknin væri farin að krefjast fullmikillar athygli af okkur.
Við vildum fá tímann okkar aftur. Ekki með því að hafna framförum heldur með því að hugsa þær upp á nýtt. Balance Phone varð ekki til vegna fortíðarþrár heldur vegna spurningarinnar: Hvað ef ekki er búið að finna upp símann sem okkur vantar?
Okkur vantaði síma sem heldur utan um það nauðsynlegasta. Síma sem gefur rými fyrir þögnina og virðir athygli þína í stað þess að berjast um hana. Sú hugmynd varð að Balance Phone; verkefni sem setur manneskjuna, nándina og raunheima í öndvegi.
Kæri meðvitaði ferðalangur,
Takk fyrir að vera hér og gefa þér tíma til að kynnast okkur. Í heimi þar sem reynt er að ná athygli þinni úr öllum áttum er það meðvituð ákvörðun að staldra við og lesa sögu annarra. Við kunnum svo sannarlega að meta það.
Velkomin í samfélag Balance Phone!
Hvort sem þú ert foreldri sem leitar að heppilegum fyrsta síma fyrir barnið þitt eða einhver sem kýs að lifa meðvitaðra lífi, þá ert þú nú hluti af hreyfingu sem lítur á tæknina sem verkfæri en ekki sem truflun.
Við stofnuðum Balance Phone vegna þess að við trúum því að samband okkar við tæknina þurfi að breytast.
Í heimi nútímans er auðvelt að tapa áttum og eyða klukkustundum í að skrolla, athuga tilkynningar og horfa á afþreyingu á skjám. En tíminn er það eina sem við fáum aldrei til baka.
Til þess erum við: til að hjálpa fólki að endurheimta tímann sinn.
Til að hjálpa þér að verja meiri tíma í það sem skiptir raunverulegu máli – hvort sem það er að vera með ástvinum, rækta áhugamálin eða einfaldlega njóta líðandi stundar án þess að skjárinn sé að trufla þig.
Við hjá Balance Phone trúum því að tengsl í raunheimum skipti meira máli en stafrænn hávaði. Tæknin ætti að færa okkur nær hvert öðru en ekki sundra okkur. Einhvers staðar á leiðinni höfum við þó leyft henni að taka allt of mikið pláss í lífi okkar.
Markmið okkar er einfalt: að skapa heilbrigðara samband við tæknina – samband þar sem þú ert við stjórnvölinn, en ekki tæknin.
Við sjáum fyrir okkur heim þar sem við erum meira til staðar í daglegu lífi, ræktum raunveruleg tengsl og njótum tímans með fólkinu í kringum okkur.
Fyrir foreldra sem treysta okkur fyrir fyrsta síma barnsins síns þá skiljum við hversu mikilvægt það er að tryggja öruggt stafrænt umhverfi.
Þetta er stórt skref og við vitum að þú vilt tryggja öryggi þeirra um leið og þú gerir þeim kleift að eiga samskipti við vini og fjölskyldu.
Við trúum því að börn eigi að geta kannað heim tækninnar án þess að mæta ávanabindandi efni eða truflunum og tileinkað sér heilbrigðar venjur strax frá upphafi.
Með því leggur þú grunninn að heilbrigðara sambandi þeirra við skjátíma í framtíðinni og það er okkur heiður að fá að vera hluti af þeirri vegferð.
Til ykkar, félaga okkar í stafrænni naumhyggju sem leitið eftir meðvitaðri lífsstíl: Við skiljum ykkur. Við höfum verið þar sem þið eruð.
Heimurinn er fullur af hlutum sem eru miklu fegurri en það sem kemst fyrir á skjá: meiri tími til að lesa, hugsa, hreyfa sig og skapa – og til að tengjast fólkinu í kringum þig af heilum hug.
Stundum viltu einfaldlega komast burt frá hávaðanum og einbeita þér að því sem færir lífinu raunverulegt gildi í stað þess að skrolla endalaust.
Það er ekki alltaf auðvelt að vera í núinu en það er þess virði. Þú ert ekki ein(n) – það er heilt samfélag af fólki alveg eins og þú sem reynir að endurskilgreina hvernig við notum tæknina.
Svo við segjum einfaldlega takk. Takk fyrir að vera hluti af þessu. Fyrir að trúa því að það sé til betri leið. Fyrir að taka skref í átt að meðvitaðra lífi þar sem nærvera er í fyrirrúmi.
Saman skilgreinum við samband okkar við tæknina upp á nýtt og tileinkum okkur betra jafnvægi í lífinu. Við vonum að Balance Phone verði dýrmætt verkfæri í þínu daglega lífi og við hlökkum til að sjá hverju þú áorkar með hjálp hans.
Við erum innilega glöð að hafa þig með okkur.
Nánar á thebalancephone.com
Vefurinn balancephone.is er rekinn af Tæknivörum ehf. sem er rótgróið íslenskt fyrirtæki með áratuga reynslu af dreifingu, sölu og þjónustu á ýmsum tæknivörum. Tæknivörur eru stoltur umboðsaðili Balance Phone á Íslandi, en við erum jafnframt dreifingaraðili Samsung á Íslandi og rekum eina viðurkennda þjónustuverkstæði vörumerkisins hérlendis.
Ef þú lendir í því að brjóta Balance Phone símann þinn, eða þarft af einhverjum öðrum ástæðum að fá þjónustu fyrir Balance Phone símann þinn, er þér velkomið að hafa samband við þjónustuverkstæði Samsung Mobile á Íslandi.
Balance Phone er stoltur styrktaraðili að hlaðvarpinu Raunheimakastið sem m.a. fjallar um áhrif of mikillar notkunar samfélagsmiðla og óhóflegrar skjánotkunar á alla – börn og unglinga, fjölskyldur, og samfélagið allt.