Spurt & svarað

Hér finnur þú allt sem þú þarft til að skilja, setja upp og nýta Balance Phone tækið þitt til hins ítrasta.

Grunnatriði Balance Phone

Áttaðu þig á grunnatriðum Balance Phone, hvernig hann virkar og hvað gerir hann frábrugðinn öðrum símum.

Balance Phone er hannaður til að minnka stafrænar truflanir.  Hann byggir á vélbúnaði frá Samsung með sérsniðnu stýrikerfi, Balance OS, sem fjarlægir truflandi þætti á borð við samfélagsmiðla, leiki, fjárhættuspil og klám en heldur öllum nauðsynlegum verkfærum sem þú þarft á að halda í daglegu lífi á borð við skilaboð, tónlist, bankaöpp og auðkenningu.

Balance OS býður einnig upp á einfaldari og rólegri hönnun notendaviðmóts símans án sjónrænar truflunar. Þetta hjálpar þér að einbeita þér að því sem máli skiptir í stað endalausra tilkynninga og truflana.

Útkoman er sími sem varðveitir kosti nútímatækni en fjarlægir ávanabindandi og skaðlega eiginleika hennar.

Að eiga Balance Phone þýðir að hafa snjallsíma sem vinnur með þér, en ekki gegn þér.

Ólíkt venjulegum snjallsímum með öppum sem eru hönnuð til að fanga athygli þína er Balance Phone hannaður til að vera verkfæri en ekki truflun. Hann takmarkar aðgang að ávanabindandi öppum og vefsvæðum, sem gerir þér kleift að einbeita þér að því sem skiptir máli í raunheimum.

Balance Phone heldur börnum og þeim sem aðhyllast stafræna naumhyggju frá truflandi og skaðlegu efni. Á sama tíma hjálpar hann notendum koma sér upp heilbrigðum stafrænum venjum, án þess að fórna nauðsynlegum verkfærum tækninnar sem fólk þarf raunverulega á að halda. 

Alls ekki! Þótt Balance Phone sé frábær kostur fyrir börn og unglinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í tækniheiminum þá er hann hannaður fyrir alla sem vilja minnka skjátíma sinn, bæta andlega heilsu og lifa meðvitaðra lífi án stafrænna truflana.

Viðskiptavinir okkar eru fjölbreyttir: fullorðnir sem vilja auka framleiðni og vera meira til staðar í raunheimum, foreldrar sem vilja tryggja örugga tækninotkun barna sinna og fólk sem glímir við stafræna fíkn og þarf aðstoð við að ná aftur stjórn á tíma sínum.

Uppsetning

Allt sem þú þarft til að nýta Balance Phone sem best – frá uppsetningu til daglegrar notkunar.

Hér eru nákvæmar leiðbeiningar um hvernig þú setur upp Balance Phone, Balance Phone Pro eða Balance OS (athugið: ef þú ert að virkja Balance OS áskrift þarftu fyrst að framkvæma verksmiðjustillingu/Factory Data Reset).

1. Ljúktu við upphafs-uppsetningu Samsung

Þegar þú kveikir á símanum í fyrsta sinn hefst uppsetningarferli Samsung. Ljúktu við stöðluðu skrefin:

  • Veldu tungumál
  • Tengdu við Wi-Fi
  • Samþykktu skilmála
2. Bíddu eftir að Balance OS setji sig upp

Þegar uppsetningu Samsung er lokið mun Balance OS uppsetning hefjast sjálfkrafa svo framarlega sem síminn er tengdur við Wi-Fi eða farsímakerfi. Vinsamlegast athugið að þetta ferli getur tekið allt að 10 mínútur og þú ættir að sjá skjá sem gefur til kynna að verið sé að undirbúa tækið.

3. Opnaðu Balance OS

Þegar uppsetningu er lokið mun upphafsskjár Balance OS opnast sjálfkrafa. Ef hann opnast ekki sjálfkrafa skaltu leita að Balance OS appinu í símanum og opna það handvirkt. Ef þú finnur ekki appið skaltu prófa að endurstilla símann (Factory Data Reset), þar sem mögulegt er að kerfið hafi ekki virkjast. Það er gert með því að fara í: Stillingar → Almenn stjórnun → Endurstilla → Núllstilling gagna.

Ef þú finnur appið enn ekki eftir endurstillingu skaltu hafa samband við okkur á balancephone@balancephone.is.

4. Skráðu þig inn með netfangi

Þegar Balance OS opnast skaltu slá inn netfang notandans til að halda áfram.

5. Veittu nauðsynleg leyfi

Þessi leyfi eru nauðsynleg til að Balance virki rétt.

  • Aðgangur að tilkynningum: Ýttu á „Leyfa“. Stillingarskjárinn opnast. Kveiktu á leyfinu með því að nota rofann.
  • Aðgengisleyfi (Accessibility permission): Ýttu á „Leyfa“. Stillingarskjárinn opnast. Farðu í „Uppsett forrit“, finndu Balance OS og kveiktu á leyfinu með rofanum.
6. Veldu heimaskjáinn þinn

Lokaskrefið er að stilla Balance OS viðmótið sem sjálfgefinn heimaskjá. Ef þú kýst að halda upprunalegu viðmóti Samsung (ONE UI) er það líka hægt, og allar takmarkanir Balance Phone munu áfram vera virkar.

Þegar þessum skrefum er lokið er Balance síminn þinn tilbúinn til notkunar!

Já, síminn verður að vera tengdur við internetið (Wi-Fi eða farsímagögn) þegar kveikt er á honum í fyrsta sinn til þess að Balance OS geti virkjast. Ef síminn er ekki tengdur mun Balance OS ekki hlaðast inn og uppsetningunni lýkur eins og um venjulegt Samsung tæki væri að ræða.

Ef þetta gerist skaltu fyrst prófa að tengja símann við Wi-Fi og athuga hvort Balance-viðmótið (launcher) birtist (þú getur leitað að Balance appinu og opnað það til að ræsa uppsetninguna).

Ef það virkjast ekki skaltu framkvæma verksmiðjustillingu (factory reset) og endurtaka uppsetningarferlið. Gættu þess að síminn sé tengdur við Wi-Fi allan tímann á meðan uppsetningarferli Samsung stendur yfir.

Ef það virkar enn ekki skaltu hafa samband við okkur á balancephone@balancephone.is og við munum aðstoða þig við að leysa málið.

Þar sem Balance síminn er byggður á Samsung tækjum virkar gagnaflutningur á nákvæmlega sama hátt og á hverjum öðrum Samsung síma.

Við mælum með því að ljúka gagnaflutningi eftir að Balance OS hefur verið sett upp að fullu, til að forðast að það trufli fyrstu stillingar tækisins.

Nokkrir valkostir eru í boði eftir því hvað þú þarft að flytjast á milli:

1. Samsung Smart Switch er ítarlegasti valkosturinn. Hann gerir þér kleift að flytja tengiliði, myndir, myndbönd, öpp, símtalasögu, stillingar og fleira, bæði úr Android og iOS tækjum. Smart Switch er venjulega foruppsett í Balance símanum þínum. Ef svo er ekki skaltu setja það upp í gegnum Google Play Store og fylgja leiðbeiningunum á skjánum. Þú getur flutt gögnin þráðlaust eða með USB-snúru (mælt er með snúru fyrir meiri hraða og áreiðanleika).


2. Google Backup endurheimtir sjálfkrafa app-gögn, tengiliði, símtalasögu og stillingar þegar þú skráir þig inn á Google-aðganginn þinn.
Til að athuga eða virkja þetta skaltu fara í Stillingar → Google → Öryggisafritun og endurheimt

3. WhatsApp spjall þarf að afrita sérstaklega, þar sem önnur flutningskerfi ná þeim ekki alltaf að fullu.
Áður en þú skiptir skaltu fara í WhatsApp Settings → Chats → Chat Backup í WhatsApp í gamla tækinu og búa til öryggisafrit á Google Drive (sjá leiðeiningar WhatsApp).

4. Google Photos. Ef þú notar nú þegar Google Photos með öryggisafritun virka, þá verður allt myndasafnið þitt aðgengilegt um leið og þú skráir þig inn á Google-aðganginn þinn í nýja tækinu.

Einfaldasta leiðin til að sjá það er að skoða heimaskjáinn. Ef Balance OS er virkt muntu annaðhvort sjá Balance OS heimaskjáinn eða – ef þú valdir Samsung One UI viðmótið – verður Balance OS appið sýnilegt í tækinu þínu.

Þú getur líka staðfest að takmarkanirnar séu virkar með því að reyna að opna app eða vefsíðu sem ætti að vera lokuð, eins og leik eða samfélagsmiðil. Ef Balance OS er virkt muntu sjá lokunarskjá frá Balance þegar þú reynir að opna það. Athugaðu að það gæti verið hægt að hlaða niður appi en þú ættir ekki að geta opnað það eða notað það.

Ef þú hefur ótakmarkaðan aðgang að öppum eða vefsíðum sem ættu að vera takmörkuð hefur Balance OS ekki verið sett upp rétt. Í því tilviki skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur á balancephone@balancephone.is.

Balance OS keyrir ofan á kerfi Samsung sem varið umhverfi. Þetta þýðir að jafnvel þótt viðmótið breytist útlitslega yfir í Samsung One UI haldast Balance-takmarkanirnar virkar í bakgrunninum svo lengi sem Balance OS var virkjað í upphafsferlinu.

Fyrst skaltu athuga hvort Balance appið sé enn uppsett í tækinu. Ef svo er mun það að opna appið ræsa Balance-viðmótið aftur.

Þú getur einnig staðfest að Balance sé virkt með því að reyna að opna lokað app eða vefsíðu (til dæmis leik eða samfélagsmiðla).

Ef þú vilt stilla Balance-viðmótið sem sjálfgefið, geturðu gert það með því að fara í:

Stillingar) → Forrit → Sjálfgefin forrit → Heimaforrit → veldu Balance OS.

Ef þú vilt koma í veg fyrir að hægt sé að skipta aftur yfir í Samsung One UI viðmótið er hægt að takmarka það með því að bæta við aukalagi af foreldraeftirliti, eins og Family Link.

Ef Balance OS appið vantar eða Balance-viðmótið birtist ekki aftur, vinsamlegast hafðu samband við þjónustuborðið okkar á balancephone@balancephone.is svo við getum yfirfarið tækið.

Já! Balance OS styður bæði viðmótin. Jafnvel þótt þú skiptir yfir í Samsung One UI haldast Balance takmarkanirnar virkar í bakgrunninum.

Þú getur skipt á milli viðmóta með því að fara í:

Stillingar → Forrit → Sjálfgefin forrit → Heimaforrit → veldu Balance eða Samsung One UI.

Ef þú vilt koma í veg fyrir að hægt sé að skipta um viðmót, er hægt að takmarka það með því að nota Family Link.

Já, það er hægt með því að bæta við aukalagi af foreldraeftirliti með Family Link. Þetta kemur í veg fyrir að notandinn geti breytt kerfisstillingum, þar á meðal að skipta um heimaviðmót. Hafðu í huga að þótt skipt sé yfir í Samsung One UI, þá haldast Balance-takmarkanirnar virkar í bakgrunninum.

  1. Opnaðu Family Link appið í tæki foreldrisins.
  2. Veldu aðgang barnsins.
  3. Farðu í Controls (Stýringar) → Devices (Tæki) → [Nafn á tæki barnsins].
  4. Opnaðu App permissions (App-heimildir).
  5. Stilltu heimildir á „Only parents“ (Eingöngu foreldrar).

Þetta kemur í veg fyrir að notandinn geti breytt heimildum appa og fengið aðgang að mikilvægum kerfisstillingum, þar á meðal að skipta á milli Samsung One UI og Balance-viðmótsins.

Þessar heimildir eru nauðsynlegar til að Balance OS virki rétt og geti beitt vörnum sínum.

Aðgengisheimildin (Accessibility) gerir kerfinu okkar kleift að skynja þegar app eða vefsíða er opnuð svo það geti ákvarðað hvort loka eigi á viðkomandi efni. Í þessu felst ekki  ekki að skilaboðin þín séu lesin, eða skjárinn skoðaður á nokkurn hátt og Balance OS hefur ekki aðgang að persónulegum gögnum eða virkni; hún einfaldlega gerir lokunarkerfinu kleift að starfa eins og til er ætlast.

Tilkynningaheimildin (Notifications) er notuð til að sýna kerfisskilaboð frá Balance, eins og viðvaranir þegar lokað er á eitthvað. Hún skoðar hvorki né geymir persónulegu tilkynningarnar þínar.

Báðar heimildirnar eru eingöngu notaðar til að reka þjónustuna og vernda upplifun þína um leið og gætt er fyllstu persónuverndarsjónarmiða.

Þú getur tengt aðgangana þína beint úr Balance Settings (Stillingar). Þar finnurðu flýtileið (Account settings) sem vísar þér í aðalstillingar símans (Settings), þar sem þú getur sýslað með og bætt við aðgöngum sem tengdir eru tækinu. Í þeim hluta geturðu bætt við Google-reikningi og Samsung-reikningi eins og þú myndir gera á venjulegum Samsung síma.

Mikilvægt: Ef um er að ræða reikning barns gæti foreldraeftirlit Google og Samsung virkjast sjálfkrafa. Ef foreldraeftirlit er ekki rétt uppsett gæti það truflað Balance OS. Til að forðast þetta geturðu bætt við fullorðins-aðgangi meðan á uppsetningu stendur og stillt foreldraeftirlitið síðar ef þess er óskað. Foreldraeftirlit er valfrjálst og er ekki nauðsynlegt til að Balance OS virki sem skyldi þó svo að Balance OS sé fyllilega samhæft þeim kerfum.

Balance er fyllilega samhæft Google Family Link, foreldraeftirliti Samsung og öllum öðrum foreldraeftirlitsöppum sem í boði eru í Play Store.

Margar fjölskyldur velja að sameina Balance og foreldraeftirlit til að bæta við fleiri lögum af vörnum, svo sem tímatakmörkunum á skjátíma, takmörkunum á ákveðin öpp eða til að læsa kerfisstillingum.

Einn af kostunum er að Balance gerir það mun erfiðara að sniðganga takmarkanir þessara foreldraeftirlitskerfa miðað við venjulega uppsetningu, þar sem lokunin virkar á kerfisstigi fremur en eingöngu innan einstakra appa.

Mikilvægt: Ef þú skráir þig inn með Google barnaaðgangi gætu takmarkanir Family Link virkjast sjálfkrafa við uppsetningu. Ef þær eru ekki rétt stilltar geta þær stundum truflað ákveðna kerfisvirkni. Þess vegna mælum við með því að ljúka allri uppsetningu símans fyrst og stilla foreldraeftirlitið eftir á.

Ef þú upplifir takmarkanir innan ákveðinna appa (til dæmis takmarkaðan aðgang eða vandamál með heimildir), þá stafar það yfirleitt af Family Link eða öðru foreldraeftirlitsappi, en ekki af Balance sjálfu. Balance lokar eingöngu á ákveðna flokka appa og vefsíðna, en hefur ekki áhrif á einstaka eiginleika innan appanna sjálfra.

Hvar er hægt að kaupa Balance Phone?

Balance Phone er stoltur styrktaraðili að hlaðvarpinu Raunheimakastið sem m.a. fjallar um áhrif of mikillar notkunar samfélasmiðla og óhóflegrar skjánotkunar á alla – börn og unglinga, fjölskyldur, og samfélagið allt.